Golf

Myndarlegur hópur sjálfboðaliða Keilis klár fyrir Íslandsmótið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sjálfboðaliðar Keilis eru tilbúnir.
Sjálfboðaliðar Keilis eru tilbúnir. Mynd/Keilir
Íslandsmótið í golfi fer fram á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði á næstu dögum og til að halda svona mót þurfti Golfklúbbinn Keilir á mörgum sjálfboðaliðum að halda til að sinna fjölmörgum störfum meðan á mótinu stendur.

Keilir er að fara að halda Íslandsmótið í þriðja sinn á Hvaleyrarvelli en þar var það líka 1999 og 2007. Nú er hinsvegar í fyrsta sinn keppt á vellinum eftir að þrjár nýjar brautir bættust við Hvaleyrina.

Keilismenn auglýstu eftir sjálfboðaliðum um miðjan júní og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Keilis.

Til að halda svona mót vantaði Keilir framverði, skorskráningafólk, aðstoðarfólk við beina útsendingu og margt fleira. Viðverutími hverrar vaktar fimmtudag og föstudag verður rúmar 4 klukkustundir en á laugardag og sunnudag um 2,5 klukkustundir samkvæmt fyrrnefndri auglýsingu.

Í gær fór fram undirbúningsfundur fyrir sjálfboðaliða sem koma að Íslandsmótinu á Hvaleyri nú um helgina.

Eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan var fundurinn afar vel sóttur og sprengdi hann utan af sér fundarsal Hraunkots, svo leita þurfti út undir bert loft til að ná mynd af hópnum.

„Framlag sjálfboðaliða er einn allra mikilvægasti þátturinn í framkvæmd mótsins en varlega áætlað má segja að sjálfboðaliðar leggi til yfir þúsund vinnustundir á næstu dögum, allir með það markmið að halda besta Íslandsmót sem haldið hefur verið,“ segir í frétt á heimasíðu Keilis.

Fyrsti hringurinn á Íslandsmótinu verður spilaður á morgun og er rástími fyrsta hópsins klukkan 7.30 um morguninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×