Fótbolti

Svona spilar Marshawn Lynch fótbolta | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dómari, rautt?
Dómari, rautt? Mynd/Skjáskot
Marshawn Lynch er einn allra besti hlaupari NFL-deildarinnar en þarf líklega að kynna sér knattspyrnulögin betur.

Lynch sló á létta strengi þegar hann kom inn á í góðgerðarleik á vegum MLS-liðsins Seattle Sounders í gær.

Hann og félagar hans óðu fram í sókn en við vítateigslínuna tók Lynch upp boltann og hélt á honum yfir marklínuna.

Lynch fékk vitanlega rautt spjald fyrir uppátækið en gaf lítið fyrir það og reif spjaldið af dómaranum.

Allt saman var þetta á léttu nótunum en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×