Tónlist

Þrjátíu tónleikar á þrjátíu og einum degi

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Dauðyflin ætla að taka dágóðan hring í Bandaríkjunum og keyra um sjö klukkustundir á dag.
Dauðyflin ætla að taka dágóðan hring í Bandaríkjunum og keyra um sjö klukkustundir á dag.
Hljómsveitin Dauðyflin ferðast í dag vestur um haf og ætlar að keyra um Bandaríkin þver og endilöng til að fylgja eftir síðustu plötu sinni, Ofbeldi, sem kom út í maí síðastliðnum.

Sveitin kemur fram á hvorki meira né minna en 30 tónleikum á 31 degi.

„Við byrjum í Olympia í Washington-ríki og förum síðan ansi vænan hring. Við erum að fara að keyra að meðaltali svona sjö klukkutíma á dag,“ segir Alexandra, söngkona sveitarinnar, en hennar bíður talsverður akstur hvern einasta dag næsta mánuðinn eða svo, en þó harðneitar hún því að þetta sé eitthvert stress.

„Nei, þetta er allt klappað og klárt. Við erum líka þrjú í hljómsveitinni sem erum líka í hljómsveitinni Börn sem hefur tekið svona túr áður. Það var bara mjög gaman – maður dettur í ákveðna rútínu; vakna, keyra, spila, sofa. Ég geri ráð fyrir því að þetta verði alveg jafn skemmtilegt.“

Ofbeldi, nýjasta plata Dauðyflanna, kom út í maí.
Blaðamaður fer ósjálfrátt að bera saman akstur æsku sinnar, sem var óbærilega langur, og allan þennan akstur sem Dauðyflanna bíður og blöskrar nánast. Eruð þið ekki orðin ansi góð í öllum svona akstursleikjum eins og gulum bíl og hvað þetta nú allt heitir? 

„Við spilum einmitt leik þar sem á að taka eftir dýrum og eigna sér dýrin sem maður sér. Síðan ef maður sér löggubíl er hægt að stela dýrum af öðrum og ef maður sér kirkju drepur maður dýrin hjá öllum öðrum en sjálfum sér. Þetta er sem sagt leikur sem bandarískir hljómsveitarvinir okkar kenndu okkur.“

Eins og áður sagði eru Dauðyflin að fylgja eftir nýjustu plötunni sinni og munu halda því áfram eftir heimkomuna – þau munu túra um Bretland og Írland í september og svo stefna þau á að taka upp eina sjö tommu fljótlega eftir heimkomuna úr þessari miklu reisu um Bandaríkin.

Nálgast má tónlist Dauðyflanna á Bandcamp síðu sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×