Tónlist

Þessir listamenn koma fram á Innipúkanum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábærir listamenn koma fram í ár.
Frábærir listamenn koma fram í ár. mynd/María Guðjohnsen
Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin 16. árið í röð um verslunarmannahelgina í ár. Aðaltónleikadagskráin fer að sjálfsögðu fram innandyra, og verður líkt og í fyrra í Kvosinni á tónleikastöðunum Húrra og Gauknum.

Þar verður boðið upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, þ.e.a.s. 4.-6. ágúst.

Frábærir listamenn koma fram í ár og má sjá nöfnin á fyrstu listamönnunum sem tilkynntir eru af forsvarsmönnum hátíðarinnar hér að neðan:

Alvia Islandia

Amabadama

aYia

Between Mountains

Cyber

Daði Freyr & Gagnamagnið

Dimma

Elli Grill

FM Belfast

Fufanu

Jón Jónsson

Kiriyama Family

Kontinuum

Marteinn Sindri

Milkywhale

Smjörvi X Hrnnr

Sóley

Sturla Atlas

Twin Twin Situation

Vök

Armband á hátíðina gildir alla helgina bæði á Húrra og Gaukinn og þau má nálgast, gegn framvísun aðgöngumiða, á Gauknum frá og með föstudeginum. Einnig er hægt að kaupa miða inn á stök kvöld. 20 ára aldurstakmark er á hátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×