Munu gera við hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands Samúel Karl Ólason skrifar 4. júlí 2017 11:37 Jón Eiríksson, viðskiptastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, með hjólastól sem er í viðgerð á nýja verkstæðinu.
Öryggismiðstöðin hefur gert samning við Sjúkratryggingar Íslands um viðgerðarþjónustu á hjálpartækjum í eigu stofnunarinnar. Þá hefur fyrirtækið innréttað nýtt verkstæði sem mun sjá um alla viðgerðarþjónustu fyrir hjálpartæki sem aldraðir og fatlað fólk notar. ,,Það hefur verið mjög mikið að gera á verkstæðinu fyrstu dagana eftir að við opnuðum hér og mikill fjöldi tækja þegar borist til okkar sem þarf að gera við. Við tökum á móti öllum stærðum og gerðum hjálpartækja. Við munum kappkosta að veita sem besta þjónustu og fólk mun ekki þurfa að fara á milli staða til að leita að aukahlutum,” segir Jón Eiríksson, viðskiptastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, í tilkynningu. Það kemur með tækin til okkar og við sjáum um að ná í allt sem vantar og gera við. Það eru mörg þúsund hjálpartæki í notkun hér á landi þannig að það er ljóst að þörf er á góðri viðgerðarþjónustu því öll tæki eiga það til að bila eins og við þekkjum. Á undanförnum árum hefur notendum hjálpartækja fjölgað verulega og fyrirsjáanleg er mikil fjölgun eldri borgara sem mun kalla á aukna þjónustu í nánustu framtíð.“ Jón segir að samningurinn sem fyrirtækið gerði nýverið við Sjúkratryggingar Íslands breyti miklu og þýði í raun aukna þjónustu fyrir aldraða og fatlað fólk varðandi öll hjálpartæki. ,,Öryggismiðstöðin er eina fyrirtækið sem mun þjónusta öll hjálpartæki fyrir Sjúkratryggingar Íslands. Við munum auk þess bjóða upp á neyðarþjónustu með öryggisbakvakt alla daga vikunnar frá klukkan sjö á morgnana til miðnættis," segir hann. Öryggismiðstöðin hefur um langt árabil boðið upp á öryggishnappa fyrir aldraða, sjúka og fatlað fólk. Á síðustu árum hefur fyrirtækið bætt í vöruframboð sitt margvíslegum velferðartæknilausnum sem gera öldruðum, sjúkum og fötluðu fólki kleift að búa lengur heima. ,,Öryggishnappurinn var upphafið af þessari þjónustu og í kjölfarið höfum við bætt við fjölmörgum öðrum hjálpartækjum fyrir þennan hóp. Í vöruframboði okkar má finna ýmsar tæknilausnir eins og rafknúna hjólastóla, rafskutlur, hjúkrunarrúm, lyftibúnað og allt upp í mjög sérhæfðar og tæknilegar lausnir eins og augnstýrðar tölvur sem nota má til tjáskipta og umhverfisstjórnunar,” segir Jón ennfremur.
Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira