Lífið

Svona líta leikararnir í Game of Thrones út í alvörunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Emilia Clarke fer með hlutverk Daenerys Targaryen í þáttunum.
Emilia Clarke fer með hlutverk Daenerys Targaryen í þáttunum.
Þann 17. júlí hefst sjöunda þáttaröðin af Game of Thrones og verða þeir sýndir á Stöð 2 á sama tíma og í Bandaríkjunum.

Einnig verða þættirnir sýndir á hefðbundnum tíma á mánudagskvöldinu daginn eftir. Um er að ræða vinsælustu þætti heims og bíða aðdáendur þeirra í ofvæni eftir hverjum þætti. HBO framleiðir þættina og er ávallt öllu tjaldað til.

Búningar og förðun spila alltaf stórt hlutverk í þáttunum og þurfa aðalleikararnir oft á tíðum að sitja í förðunarstólnum í nokkrar klukkustundir á dag.

Á vefsíðunni ViralThread er búið að taka saman myndir af því hvernig aðalleikararnir líta út dagsdaglega og má sjá nokkur góð dæmi hér að neðan og hér má sjá þau öll. 

Gwendoline Christie sem Brienne of Tarth
Rory McCann sem Sandor 'The Hound' Clegane
Finn Jones sem Loras Tyrell
Conleth Hill sem Lord Varys
Aidan Gillen sem Petyr Littlefinger Baelish
Kristian Nairn sem Hodor
Dean-Charles Chapman sem Tommen Baratheon
Gemma Whelan sem Yara Greyjoy





Fleiri fréttir

Sjá meira


×