Fótbolti

Stjarnan úr leik eftir tap á Írlandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðjón Baldvinsson og félagar eru úr leik.
Guðjón Baldvinsson og félagar eru úr leik. vísir/anton
Stjarnan úr Garðabæ er úr leik í Evrópudeild UEFA eftir 1-0 tap á móti írska liðinu Shamrock Rovers í seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppninnar í kvöld.

Írska liðið vann fyrri leikinn á Samsung-vellinum, 1-0, og einvígið því samanlagt, 2-0, en eins og augljóst er skoraði Stjarnan ekki mark á 180 mínútum á móti Shamrock.

Eina mark leiksins í kvöld skoraði Graham Burke á 20. mínútu eftir laglega sókn heimamanna sem voru í heildina betri aðilinn þó svo að Stjarnan átti sína spretti.

Hilmar Árni Halldórsson fékk dauðafæri í seinni hálfleik en skaut boltanum yfir tíu metrum frá marki.

Hefði Stjarnan komist áfram hefði hún mætt Mladá Boleslav frá Tékklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×