Innlent

Bönkuðu óvænt upp á hjá Stefáni Karli og gáfu honum glæsilegt hjól

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steinunn Ólína tók mynd af gleðigjöfunum og kettinum Rufus.
Steinunn Ólína tók mynd af gleðigjöfunum og kettinum Rufus. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson er kominn á nýtt og stórglæsilegt hjól. Hjóli kappans var stolið fyrir tæpum fjórum vikum á meðan leikarinn dvaldi á spítala. Um var að ræða hjól bróður hans sem hann fékk að láni og geymdi læst í bakgarði sínum í miðbæ Reykjavíkur.

Stefán Karl var að vonum ósáttur enda hafði hann ætlað að nota hjólið mikið í sumar og skapa skemmtilegar minningar með börnum sínum.

Það er því óhætt að segja að óvænt heimsókn Emils Þórs Guðmundssonar og Einars Þórs Hákonarsonar hjá Kria Cycles hafi verið kærkomin í gær. Félagarnir komu að sjálfsögðu hjólandi og teymdu á milli sín nýtt hjól fyrir Stefán Karl. Óvænt gjöf sem Stefán Karl var eðlilega mjög þakklátur fyrir og knúsaði þá félaga í bak og fyrir.

Trommuleikarinn Einar Scheving var í kaffi hjá þeim hjónum þegar gestina bar að garði og greinilegt að hann var þátttakandi í gleðskapnum. Stefán Karl tók hjólið strax inn í hús enda ekki á þeim buxunum að láta neinn nappa þessu glæsilega hjóli.

Að neðan má sjá myndband sem Einar Scheving tók á heimili þeirra Stefáns Karls og Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur í gær. Vonandi kemur hjólið að góðum notum en eins og alþjóð veit glímir leikarinn ástsæli við alvarleg veikindi sem eru langt gengin eins og fjallað var um á dögunum.


Tengdar fréttir

Sjúkdómur Stefáns Karls langt genginn

Fjórtán daga spítalavist Stefáns Karls er nú lokið en fyrr í mánuðinum voru fjarlægð þrjú meinvörp úr lifur. Í kjölfarið fékk Stefán Karl sýkingu sem lengdi spítalavistina um viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×