Innlent

Allur bílaflotinn endurnýjaður á einu bretti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Einn hinna nýju bíla, af gerðinni Toyota Rav.
Einn hinna nýju bíla, af gerðinni Toyota Rav. HSU
Heilbrigðisstofnun Suðurlands gerði nýverið langtímasamning við Bílaleigu Akureyrar um leigu á 16 bílum til afnota fyrir stofnunina. Endurnýjaði hún þar með allan bílaflota sinn.

Fram kemur á vefsíðu HSU að flestir bílarnir séu af gerðinni Kia Ceed og Toyota Rav 4, auk tveggja annarra bíla. Þá hafa bílarnir verið merktir stofnunni með áberandi hætti. 

„Núverandi bílar leysa af hólmi eldri bílaflota HSU sem flestir voru af Skoda gerð, orðnir gamlir, komnir í mikið viðhald og sumir hverjir mjög mikið eknir og voru orðnir stofnunni dýrir,“ segir á vefnum og bætt er við að hagkvæmara hafi þótt að gera leigusamning heldur en að fara í kaup á bílum.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands rekur 10 starfsstöðvar um allt Suðurland, í Þorlákshöfn, Hveragerði, Laugarási, Selfossi, Hellu, Hvolsvelli, Vestmannaeyjum, Vík Mýrdal, Kirkjubæjarklaustri og á Höfn í Hornafirði.

„Á þessum stöðvum sinnir hjúkrunarfólk heimaþjónustu í bæjarfélögunum og út um sveitirnar og auk þess sem læknar sinna útköllum á þessum stöðum, við mjög misjafnar aðstæður allt árið, jafnvel utan alfaraleiðar.  Slík þjónusta kallar á bíla sem hægt er að treysta, svo öryggi starfsfólksins sé tryggt og þjónustan skili sér á áfangastað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×