Golf

Ólafía í baráttu við þær bestu eftir frábæran hring

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía á vellinum í gær.
Ólafía á vellinum í gær. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði frábærlega á þriðja keppnisdegi á Thornberry Creek-mótinu á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hún kom í hús á 68 höggum, fjórum undir pari vallarins, og er á samtals tíu höggum undir pari.

Hún var í 15.-19. sæti þegar hún lauk leik en þá áttu fjölmargir keppendur enn eftir að klára sinn hring.

Ólafía hefur aldrei verið á jafn lágu skori á LPGA-mótaröðinni hingað til og er fimm höggum á eftir efsta kylfingi, Katherine Kirk frá Ástralíu sem var á fimmtán undir eftir fyrri níu hjá sér.

Ólafía steig ekki feilspor á fyrri níu og fékk þá sex pör og þrjá fugla. Á seinni níu fékk hún aftur þrjá fugla en tvo skolla þar að auki.

Sýnt er frá mótinu á Stöð 2 Sport 4 en bein útsending frá fjórða keppnisdegi hefst klukkan 21.30 annað kvöld.

Fylgst var með Ólafíu í beinni textalýsingu sem má lesa hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×