Golf

Ólafía: Náði að halda mér rólegri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var áængð að loknum þriðja keppnishring á Thornberry Creek Classic-mótinu á LPGA-mótaröðinni. Hún spilaði á fjórum höggum undir pari og er í 15.-22. sæti á tíu höggum undir pari samtals.

„Ég var að slá ótrúlega vel af teig og náði að koma mér í góð færi. Ég náði líka að pútta mjög vel,“ sagði Ólafía eftir hringinn í gær.

Hún segir það vissulega skemmtilegt að vera nálægt efstu konum þegar lokahringurinn hefst og að vera í færi á að blanda sér í baráttu um efstu sætin.

„Öll reynslan af LPGA er byrjuð að skila sér og mér líður bara nokkuð vel. Ég náði að halda mér nokkuð rólegri í dag - ég þurfti bara að muna að borða og anda og fleira í þeim dúr,“ sagði hún og brosti.

Ólafía sagði eftir PGA-meistaramótið um síðustu helgi að hún hefði gerð byrjendamistök þar. „Ég var ekki nógu dugleg að borða og svo var ég alveg að pissa á mig. Blóðsykurinn féll og það eru algjör byrjendamistök,“ sagði Ólafía þá.

Hún missti fáein pútt í gær, þar af stutt pútt fyrir fugli á sautjándu holu eftir frábært teighögg.

„Ég hefði kannski viljað vera ákveðnari í sumum púttum í dag. Ég tek því kannski nokkur pútt á æfingasvæðinu en svo ætla ég að hvíla mig.“

Ólafía hefur leik klukkan 14.39 að íslenskum tíma í dag og hefst bein útsending frá mótinu klukkan 18.00 á Stöð 2 Sport 4.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×