Formúla 1

Valtteri Bottas vann í Austurríki

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas ók gríðarlega vel í Austurríki.
Valtteri Bottas ók gríðarlega vel í Austurríki. Vísir/Getty
Valtteri Bottas á Mercedes vann austurríska kappaksturinn. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar eftir harða baráttu við Bottas. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Hamilton gerði grjótharða atlögu að verðlaunasætinu en varnarakstur Ricciardo skilaði Red Bull verðlaunasæti á heimavelli. Munurinn á Hamilton og Vettel er 20 stig í heimsmeistarakeppni ökumanna Vettel í vil.

Bottas átti frábæra ræsingu, hann hreinlega stakk af. Á sama tíma vann Hamilton sig upp um tvö sæti og Raikkonen tapaði tveimur sætum til Ricciardo og Romain Grosjean.

Max Verstappen féll úr leik strax á fyrsta hring, sama var upp á teningnum hjá Fernando Alonso. Daniil Kvyat keyrði á Alonso og bíll Alonso skaust á Verstappen. Kvyat þurfti að aka einu sinni í gegnum þjónustusvæðið í refsiskyni fyrir aksturslag sitt.

Vettel var fljótur í talstöðina til að segja Charlie Whiting, keppnisstjóra Formúlu 1 að hann teldi Bottas hafa þjófstartað. Dómarar keppninnar tóku það til skoðunar. Ekkert var þó athugunarvert við ræsinguna hjá Bottas.

Hamilton tókst að komast fram úr Sergio Perez á Force India og Romain Grosjean á Haas. Hann hóf þá að elta uppi Kimi Raikkonen á Ferrari bílnum. Slagurinn á milli þeirra harðnaði á 22. hring. Hamilton kíkti aðeins meðfram Raikkonen en efir það dró hann sig aðeins í hlé.

Kevin Magnussen hætti keppni á 30. hring þegar glussakerfið virtist tæmast í bílnum hjá Dananum á Haas bílnum.

Hamilton lágmarkaði skaðan vel eftir að hafa ræst í áttunda sæti endaði hann fjórði.Vísir/Getty
Hamilton kom inn á undan öllum fremstu mönnum á 31. hring og fékk últra-mjúk dekk undir. Ricciardo kom svo inn á 33. hring og fékk ofur-mjúk dekk undir. Vettel kom inn á 34. hring og gerði það sama.

Bottas kom inn á 41. hring og fékk ofur-mjúk dekk undir Mercedes bílinn. Raikkonen tók við forystunni í keppninni. Bottas komst þó fram úr landa sínum á 44. hring. Raikkonen tók þjónustuhlé í kjölfarið.

Ferrari menn sóttu á Mercedes menn í þegar um 20 hringir voru eftir af 71. Vettel sótti að Bottas í baráttu þeirra um fyrsta sæti og Raikkonen sótti á Hamilton í baráttu þeirra um fjórða sæti. Á meðan var Ricciardo í þriðja sæti á til þess að gera auðum sjó.

Ricciardo fór þó að finna fyrir meiri pressu frá Hamilton á síðustu tíu hringjunum. Hamilton tókst að slíta sig frá Raikkonen. Á meðan var Vettel að sækja á Bottas og bilið komiðundir tvær sekúndur þegar fimm hringir voru eftir.

Barátta sjóðhitnaði á síðustu tveimur hringjunum. En þrátt fyrir góðar tilraunir bæði frá Hamilton og Vettel breyttist staðan ekki.


Tengdar fréttir

Bottas: Markmiðið er að vinna á morgun

Valtteri Bottas náði í sinn annan ráspól á ferlinum í Austurríki í dag. Finninn sýndi mátt sinn og meginn, hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Lewis Hamilton hraðastur á föstudegi

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer í Austurríki um helgina. Max Verstappen á Red Bull varð annar á fyrri æfingunni og Sebastian Vettel á Ferrari varð annar á seinni æfingunni.

Valtteri Bottas á ráspól í Austurríki

Valtteri Bottas á Mercedes náði ráspól í Austurríki. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes þriðji en Hamilton ræsir áttundi vegna fimm sæta refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×