Formúla 1

Alvöru endasprettur í Austurríki | Sjáðu uppgjörsþáttinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir alla helstu atburðina í austurríska kappakstrinum sem fram fór í dag.

Valtteri Bottas átti afbragðs ræsingu og var einungis tveimur þúsundustu úr sekúndu frá því að þjófstarta. Viðbragðstíminn hans var 0,201 en allt undir 0,200 er þjófstart. Bottas ók frábæran varnarakstur og þurfti aldeilis að hafa fyrir því að halda forystunni undir lokin.

Endaspretturinn var afar spennandi, bæði baráttan um fyrsta sætið á milli Sebastian Vettel og Bottas og síðasta verðlaunasætið á milli Lewis Hamilton og Daniel Ricciardo. Uppgjörsþáttin má sjá í spilaranum í fréttinni.


Tengdar fréttir

Bottas: Markmiðið er að vinna á morgun

Valtteri Bottas náði í sinn annan ráspól á ferlinum í Austurríki í dag. Finninn sýndi mátt sinn og meginn, hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Valtteri Bottas vann í Austurríki

Valtteri Bottas á Mercedes vann austurríska kappaksturinn. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar eftir harða baráttu við Bottas. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Valtteri Bottas á ráspól í Austurríki

Valtteri Bottas á Mercedes náði ráspól í Austurríki. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes þriðji en Hamilton ræsir áttundi vegna fimm sæta refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×