Bílar

Elon Musk sviptir hulunni af Model 3

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Í baksýn sjást höfuðstöðvar fyrirtækisins Tesla í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Í baksýn sjást höfuðstöðvar fyrirtækisins Tesla í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Vísir/Elon Musk
Elon Musk, einn stofnandi rafbílaframleiðandans Tesla, hefur birt fyrstu myndir af rafbílnum Model 3. Bíllinn er sá fyrsti frá Tesla sem fjöldaframleiddur er fyrir kaupendur á almennum markaði. BBC greinir frá.

Musk deildi myndum af bílnum á Twitter-síðu sinni í gær en fyrstu þrjátíu eigendur bílsins munu fá að setjast undir stýri þann 28. júlí næstkomandi. Að því búnu verður bíllinn gerður aðgengilegur kaupendum úr röðum almennings.

Bíllinn er fjögurra dyra og mun kosta 35 þúsund Bandaríkjadali eða rúmar 3,6 milljónir íslenskra króna. Tesla sérhæfir sig meðal annars í framleiðslu á rafbílum en verðið á Model 3 nemur um helmingi verðsins á næstódýrasta bíl fyrirtækisins.

Skráningum á nýjum Teslu-bílum í Kaliforníu-fylki í Bandaríkjunum, þar sem stærstur hluti viðskiptavina fyrirtækisins býr, fækkaði um 24 prósent í apríl á síðasta ári í samanburði við aprílmánuð árið 2014.

Þá birtir Elon Musk nýju myndirnar af Model 3 í kjölfar fréttaflutnings af bílaframleiðandanum Volvo, sem hyggst verða fyrsti hefðbundni bílaframleiðandinn til að hætta alfarið notkun á bensín- og díselvélum í bifreiðar sínar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×