Golf

Kærasti Ólafíu bar kylfur annarrar stelpu: „Þetta var svolítið skrítinn dagur“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði vel um helgina.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði vel um helgina. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði sínum næstbesta árangri á LPGA-mótaröðinni í golfi í dag þegar hún hafnaði jöfn öðrum í 36. sæti á Thornberry Creek Classic-mótinu í Wisconsin.

Hún lauk leik í dag á pari í dag eftir að vera mest ellefu höggum undir pari en í heildina spilaði hún á tíu höggum undir pari. Það var slæmur kafli á 4.-7. holu sem fór aðeins með Ólafíu en þar fékk hún þrjá skolla.

„Ég var að spila mjög vel en ég datt aðeins úr sambandi við pútterinn minn í smá tíma. Ég missti þrjú meters pútt sem er mjög pirrandi. Annars var ég bara að slá mjög vel og gera allt nokkuð vel,“ segir Ólafía Þórunn en lokahringurinn var að mörgu leyti mjög sérstakur fyrir íslenska kylfinginn.

„Þetta var svolítið skrítinn dagur. Kylfuberi stelpunnar sem ég var að spila með veiktist og Thomas [kærasti Ólafíu] fór að bera kylfurnar hennar. Þetta var mikil ringulreið.“

Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafía kemst á tíu högg undir par í heildarskor síðan hún hóf leik á LPGA-mótaröðinni.

„Það er ákveðinn tindur að komast upp á að ná tveggja stafa tölu á LPGA-mótaröðinni. Ég er bara mjög stolt af því. Vonandi held ég áfram svona,“ segir Ólafía, en hvað tekur nú við?

„Ég er orðin smá lúin núna. Eins og ég segi er þetta búið að vera skrítið mót. Það voru tafir vegna veðurs og ég byrjaði fjórum sinnum á síðustu tveimur dögunum. Ég er smá þreytt þannig ég tek mér pásu í einn til tvo daga en ætla svo að koma sterk aftur til leiks,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×