Matur

Í eldhúsi Evu: Pulled pork hamborgarar með hrásalati

Eva Laufey skrifar
Girnilegir smáborgarar sem henta t.d. vel þegar tekið er á móti gestum.
Girnilegir smáborgarar sem henta t.d. vel þegar tekið er á móti gestum. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að hamborgurum með pulled pork og hrásalati.

Pulled pork hamborgarar með hrásalati

700-800 g úrbeinaður svínahnakki

1 tsk paprikukrydd

1 tsk cumin krydd

1 tsk hvítlauksduft

Salt og pipar, magn eftir smekk ca. 1 tsk af hvoru

1 laukur

1 msk ólífuolía

2 dl bbq sósa

200 ml bjór



Aðferð:

Hitið olíu í potti, kryddið kjötið með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan. Brúnið kjötið á öllum hliðum, skerið niður lauk og bætið lauknum og bbq sósunni út í pottinn. Hellið bjórnum í pottinn og leyfið sósunni að ná suðu. Setjið lok á pottinn og setjið inn í ofn og eldið í 3-6 klst (því lengur, því mýkra verður kjötið) við 140°C.



Þegar kjötið er tilbúið er það rifið niður og meiri bbq sósu er bætt við, magnið fer eftir smekk.



Hamborgarabrauð

470 g hveiti

3 tsk þurrger

1 tsk hunang

250 g volgt vatn

1 tsk salt

1 dl ólífuolía

1 egg, pískað



Ofan á:

egg

sesamfræ

Aðferð:

Setjið þurrger og hunang út í volgt vatn og hrærið, um leið og það byrjar að freyða í skálinni er gerblandan tilbúin og þá má bæta hveitinu, saltinu, pískuðu eggi og ólífuolíu saman við. Þegar deigið er orðið þétt og fínt þá stráið þið hveiti á borðflöt og hnoðið deigið, setjið deigið í hreina skál og leyfið því að hefast í um það bil klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.

Skiptið deiginu í jafn stóra bita og mótið hvern bita í kúlu, leggið þær síðan á pappírsklædda ofnplötu og penslið eggi yfir ásamt því að sáldra sesamfræjum yfir bollurnar rétt í lokin. Bakið við 210°C í 15-18 mínútur eða þar til hamborgarabrauðin eru orðin gullinbrún.



Hrásalat með chili majónesi

2 dl majónes

1-2 msk chilimauk, magn eftir smekk

Salt og pipar

½ höfuð ferskt rauðkál

4 gulrætur

Handfylli spínat

2 msk kóríander

Safi úr hálfri límónu

Salt og pipar



Aðferð:

Blandið majónesi og chilimauki saman og kryddið til með salti og pipar.

Rífið niður ferskt rauðkál og gulrætur, saxið niður spínat og kóríander og blandið öllum hráefnum saman í skál. Kreistið safann úr límónu yfir og kryddið til með salti og pipar. Berið fram með hamborgurunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×