Enski boltinn

Crouch gerir grín að sjálfum sér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Crouch með tveimur „fjölskyldumeðlimum“.
Crouch með tveimur „fjölskyldumeðlimum“. mynd/twitter
Enski framherjinn Peter Crouch var sigurvegari Twitter í gær með stórkostlegri færslu þar sem hann gerði grín að sjálfum sér.

„Sumarið hjá mér snýst um að eyða tíma með fjölskyldunni,“ skrifaði Crouch við mynd af sér með tveimur gíröffum.

Crouch er sjálfur rúmir tveir metrar á hæð og hefur á stundum verið strítt fyrir limaburð sinn enda með eindæmum grannur og þykir um margt minna á gíraffa.

Crouch er greinilega í góðri sátt við sjálfan sig og með húmorinn í lagi en margir hlógu með honum og kunnu að meta þennan skemmtilega húmor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×