Körfubolti

Björn aftur til meistaranna

Björn leikur aftur í svarthvítu á næsta tímabili.
Björn leikur aftur í svarthvítu á næsta tímabili. vísir/anton
Körfuboltamaðurinn Björn Kristjánsson er genginn í raðir Íslandsmeistara KR á nýjan leik eftir eins árs dvöl hjá Njarðvík.

Björn varð Íslandsmeistari með KR 2015 og 2016 og bikarmeistari 2016.

Fyrir síðasta tímabil söðlaði hann um og gekk til liðs við Njarðvík. Björn var með 13,1 stig, 4,7 fráköst og 3,7 stoðsendingar að meðaltali í leik með Njarðvík sem endaði í 9. sæti Domino's deildarinnar og komst ekki í úrslitakeppnina.

KR hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin fjögur ár og bikarmeistari tvö ár í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×