Formúla 1

Formúla 1 snýr aftur til upprunalandsins 2018

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel kemur sér fyrir á ráslínu í ástralska kappakstrinum sem verður venju samkvmt fyrsta keppni ársins 2018.
Sebastian Vettel kemur sér fyrir á ráslínu í ástralska kappakstrinum sem verður venju samkvmt fyrsta keppni ársins 2018. Vísir/Getty
FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið birti fyrir skemmstu keppnisdagatalið fyrir 2018 tímabilið í Formúlu 1. Kafað er í ástæður á bakvið dagsetningar í dagatalinu.

Í fyrsta sinn í sögu Formúlu 1 verður svokallaður þríhöfði á dagskrá, þar sem þrjár keppnishelgar verða í röð.

Franski kappaksturinn er fyrsti af þríhöfðanum, næstur kemur austurríski kappaksturinn og þar á eftir sá breski á Silverstone brautinni.

Liðin munu eflaust kalla þetta erfitt í framkvæmd og ökumenn munu reyna á þolrif andlegs og líkamlegs úthalds en svona er staðan.

Frakkland er upprunaland Formúlu 1 og það má því segja að Formúla 1 snúi heim. Fyrsti Formúlu 1 kappaksturinn fór fram árið 1906. Paul Ricard - brautin hefur ekki sést á keppnisdagatalinu síðan 1990.

Til viðbótar við áður nefndan þríhöfða þá verða fimm keppnir á sex vikum fyrir sumarfríið sem verður í ágúst.

Dags.   -     Braut      -    Land

25. mars - Melbourne - Ástralía

8. apríl - Sjanghæ - Kína

15. apríl - Shakír - Bahrein

29. apríl - Bakú - Aserbadjían

13. maí - Barselóna - Spánn

27. maí - Mónakó - Mónakó

10. júní - Montreal - Kanada

24. júní - Le Castellet - Frakkland

1. júlí - Spielberg - Austurríki

8. júlí - Silverstone - Bretland

22. júlí - Hockenheim - Þýskaland

29. júlí - Búdapest - Ungverjaland

26. ágúst - Spa-Francorchamps - Belgía

2. september - Monza - Ítalía

16. september - Singapúr - Singapúr

30. september - Sotsjí - Rússland

7. október - Suzuka - Japan

21. október - Austin - Bandaríkin

28. október - Mexíkóborg - Mexíkó

11. nóvember - Saó Paolo - Brasilía

25. nóvember - Yas Marína - Abú Dabí


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×