Viðskipti erlent

Stofnandi Uber víkur vegna þrýstings frá hluthöfum

Kjartan Kjartansson skrifar
Travis Kalanick, framkvæmdastjóri Uber
Travis Kalanick, framkvæmdastjóri Uber Vísir/Getty
Travis Kalanick, framkvæmdastjóri og stofnandi akstursþjónustunnar Uber, sagði af sér í gær vegna þrýstings frá hluthöfum. Hvert hneykslismálið hefur rekið annað hjá fyrirtækinu undanfarin misseri, þar á meðal kvartanir um kynferðislega áreitni.

Fleiri af æðstu stjórnendum Uber hafa hrakist úr starfi undanfarna mánuði. Uber hefur meðal annars verið sakað um að blekkja yfirvöld í löndum sem fyrirtækið starfar og koma illa fram við bílstjóra sína samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Steininn tók þó úr þegar í ljós kom að yfirmenn hjá fyrirtækinu höfðu orðið sér út um upplýsingar um fórnarlamb sem bílstjóra þess nauðgaði árið 2014 og skipst á þeim innanhúss.

Þá hefur tuttugu manns verið sagt upp hjá fyrirtækinu vegna yfir tvö hundruð kvartana um kynferðislega áreitni sem borist hefur mannauðsdeild þess.

Kalanick hafði áður greint frá því að hann ætlaði að taka sér ótímabundið leyfi eftir að móðir hans fórst í bátaslysi. Hann mun hins vegar enn sitja í stjórn Uber.


Tengdar fréttir

Uber áfram til vandræða

Málefni leigubílaþjónustunnar hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri eftir að Susan Fowler, fyrrverandi starfsmaður Uber, sakaði yfirmenn sína um kynferðislega áreitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×