Lífið

Staðgöngumóðir Kim og Kanye fær 4,7 milljónir og langan lista yfir hluti sem hún má ekki gera

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kanye West, North West og Kim Kardashian .
Kanye West, North West og Kim Kardashian . vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og rapparinn Kanye West hafa ráðið staðgöngumóðir til að ganga með þriðja barn þeirra hjóna.

Þetta kemur fram í frétt TMZ og segir þar að konan fái eftirfarandi greitt frá hjónunum:

- 4500 dollara á mánuði í tíu mánuði eða því sem samsvarar 470.000 íslenskum krónum.

- Ef konan verður ólétt af fleiri en einu barni, þá fær hún rúmlega fimm hundruð þúsund krónur aukalega fyrir hvert barn.

- Kim og Kanye þurfa einnig að greiða umboðsskrifstofu 68.850 dollara og er það rúmlega sjö milljónir króna.

Staðgöngumóðirin hefur skrifað undir samning þess efnis að hún megi ekki reykja, drekka áfengi eða nota fíkniefni á meðgöngunni.

Einnig má hún ekki stunda kynlíf síðustu vikur meðgöngunnar.

Hún má ekki fara í heitan pott eða gufubað á meðgöngunni og má hún heldur ekki lita á sér hárið og aðeins drekka einn drykk á dag sem inniheldur koffín. Konan má ekki borða hráan fisk.

Fyrir eiga þau hjónin tvö börn, þau North West og Saint West.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×