Sport

Washington Redskins vill fá Hafþór Júlíus á æfingar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hafþór ásamt Danielle Hunter og Kyle Rudolph, leikmönnum Minnesota Vikings. Þeir komu færandi hendi með treyju fyrir Fjallið og svo var rifið í lóðin.
Hafþór ásamt Danielle Hunter og Kyle Rudolph, leikmönnum Minnesota Vikings. Þeir komu færandi hendi með treyju fyrir Fjallið og svo var rifið í lóðin. vísir/ernir
Lið í NFL-deildinni halda áfram að bera víurnar í kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson og hann staðfesti við Vísi í gær að hafa verið í sambandi við Washington Redskins.

„Ég hef ekki talað um það mikið sjálfur að hafa langað að komast í NFL en það hafa nokkur lið reynt að fá mig til sín,“ segir Hafþór Júlíus en hann tók á móti leikmönnum Minnesota Vikings í æfingasalnum sínum í gær og var tekið á því.

„Nýjasta liðið sem hefur samband er Washington Redskins. Ég hef aðeins verið að tala við þá. Þeir vilja fljúga mér út og sjá mig. Ég er aftur á móti önnum kafinn í öðru eins og staðan er í dag.“

Hafþór er orðinn 28 ára gamall og segir að ef hann ætli sér í NFL-deildina þurfi það að gerast á næstu árum.

„Ég hef auðvitað ekki stundað þessa íþrótt áður og þyrfti að fara í stífar æfingar til þess að læra íþróttina. Læra reglurnar og allt sem fylgir,“ segir Fjallið en heillar þessi íþrótt?

„Þetta heillar mig smá en minn draumur er að verða sterkasti maður heims. Ég hef ekki enn náð því markmiði. Þegar ég er búinn að vinna þann titil getur vel verið að ég prófi mig áfram í NFL.

„Ég held ég yrði ágætur í vörninni í NFL. Ég er stór og mikill og snöggur miðað við stærð og þyngd. Ég held ég muni pluma mig ágætlega þó ég segi sjálfur frá.“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×