Íslenski boltinn

Stjarnan frumsýnir Evrópubúninginn | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjörnumenn í nýja Evrópubúningnum.
Stjörnumenn í nýja Evrópubúningnum. mynd/facebook-síða stjörnunnar
Stjarnan frumsýndi í dag nýjan búning sem liðið mun klæðast í Evrópudeildinni í sumar.

Stjarnan dróst gegn Shamrock Rovers frá Írlandi í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Fyrri leikurinn fer fram á Samsung-vellinum 29. júní en sá seinni á heimavelli írska liðsins 6. júlí.

Evrópubúningur Stjörnunnar var valinn með netkosningu sem lauk fyrir rúmum mánuði. Sigurtreyjan hlaut nokkur þúsund atkvæði.

Stjörnustrákarnir fengu að máta nýju Evróputreyjuna í dag og það má segja að hún fari þeim ágætlega.

Hér að neðan má sjá myndir af Stjörnumönnum í nýja Evrópubúningnum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×