Formúla 1

Monisha Kaltenborn hætt hjá Sauber

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Monisha Kaltenborn er hætt hjá Sauber.
Monisha Kaltenborn er hætt hjá Sauber. Vísir/Getty
Monisha Kaltenborn hefur yfirgefið stöðu sína sem liðsstjóri Sauber. Kaltenborn varð fyrsta konan til að verða liðsstjóri í Formúlu 1 árið 2012 þegar hún tók við stöðunni hjá Sauber.

Longbow Finance keypti ráðandi hlut í Sauber liðinu í fyrra, af Peter Sauber, stofnanda liðsins.

Ýmsar skýringar kunna að vera fyrir því að Kaltenborn yfirgaf stöðu sína. Ein kenningin er sú að hún hafi viljað algjört jafnræði með ökumönnum liðsins en að slíkt hafi ekki verið ætlun Longbow Finance. Marcus Ericsson annar ökumanna liðsins hefur náin tengsl við Longbow Finance sem hefur líklega gert það að verkum að Kaltenborn hefur þótt halla á Pascal Wehrlein hinn ökumann Sauber.

Eftirminnilegasta augnablik í sögu Sauber undir stjórn Kaltenborn eru því miður ekki titlar eða unnar keppnir. Árið 2015 var staðan hjá Sauber sú að liðið var með þrjá ökumenn til að aka tveimur bílum í fyrstu keppni ársins. Giedo van der Garde var skilinn eftir út í kuldanum. Hann fékk þó væna summu greidda vegna þess að samningi hans var rift. Ericsson og Felipe Nasr óku fyrir liðið það árið.

Sauber liðið heldur nú til Aserbadjían til keppni um helgina án liðsstjóra.


Tengdar fréttir

Formúla 1 snýr aftur til upprunalandsins 2018

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið birti fyrir skemmstu keppnisdagatalið fyrir 2018 tímabilið í Formúlu 1. Kafað er í ástæður á bakvið dagsetningar í dagatalinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×