Viðskipti erlent

Clooney og félagar selja tekíla-fyrirtækið fyrir milljarð dala

Atli Ísleifsson skrifar
George Clooney stofnaði Casamigos árið 2013 ásamt félögum sínum Rande Gerber og Mike Meldman.
George Clooney stofnaði Casamigos árið 2013 ásamt félögum sínum Rande Gerber og Mike Meldman. Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn George Clooney hefur ásamt viðskiptafélögum sínum selt tekílafyrirtækið sem hann átti þátt í að stofna til drykkjarrisans Diageo fyrir milljarð Bandaríkjadala, um 105 milljarða króna.

Clooney stofnaði Casamigos árið 2013 ásamt félögum sínum Rande Gerber og Mike Meldman.

Clooney hefur heldur betur ástæðu til að fagna þessa dagana því fyrr í mánuðinum eignaðist hann og eiginkona hans, Amal, tvíburana Elle og Alexander.

Casamigos var stofnað í kjölfar tekíladrykkju þeirra félaga og var framleiðslan upphaflega hugsuð til eigin neyslu.

Clooney segir að þeir félagar muni áfram tengjast Casamigos. „Við byrjum á einu [tekíla]skoti í kvöld. Kannski tveimur,“ sagði Clooney í samtali við CNBC.

Breski drykkjarrisinn Diageo hyggst markaðssetja Casamigos á alþjóðamarkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×