Lífið

Scarlett Johansson bauð tvífaranum á frumsýninguna og datt síðan í það með henni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Johansson og Geraldine á rauða dreglinum.
Johansson og Geraldine á rauða dreglinum. vísir
Í apríl á þessu ári fékk leikkonan Scarlett Johansson margar ábendingar um að það væri til kona á áttræðisaldri sem hafi verið nákvæmlega eins og leikkonan á sínum tíma.

Konan heitir Geraldine Dodd og er í dag 72 ára gömul. Málið vakti fyrst athygli á Reddit þegar barnabarn Dodd deildi mynd af ömmu sinni og sagði að hún hefði verið mjög lík Johansson.

Síðan rataði málið alla leið til leikkonunnar sem ákvað að deila myndbandi þar sem hún býður Dodd út að borða.

Á dögunum var nýjasta kvikmynd Johansson frumsýnd og bauð hún þá Geraldine á rauða dregilinn og á frumsýninguna. Hún sagði síðan í spjallþætti Stephen Colbert daginn eftir að þær vinkonurnar hefðu fengið sér nokkuð í tána og dottið í það saman.

Hér að neðan má sjá viðtalið við leikkonuna í hjá Stephen Colbert. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×