Viðskipti innlent

Lindex á Íslandi opnar vefverslun

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá opnun Lindex í Smáralind 2011.
Frá opnun Lindex í Smáralind 2011.
Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja netverslun á slóðinni lindex.is í haust. Á síðunni verður boðið upp á tískufatnað fyrir konur,undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga. Vörurnar munu verða afhendar beint úr nýju vöruhúsi Lindex sem mun tryggja að afhendingartími verður með stysta móti.

„Við erum að innleiða netverslun á öllum okkar stöðum og leggjum mikla vinnu í það og einurð. Við erum full tilhlökkunar að geta boðið okkar hagkvæmu tískuvörur í netverslun sem er á heimatungumálinu og gefa upp verð í heimagjaldmiðlinum,“ segir Ingvar Larsson, forstjóri Lindex.

„Við erum mjög ánægð með þetta skref og teljum að það felist í því mikil tækifæri með ört vaxandi netverslun Íslendinga. Sett í samhengi við okkar mikla fjölda verslana um land allt mun þetta án nokkurs vafa verða frábær viðbót við flóru verslana okkar. Við munum afhenda vörurnar beint frá vöruhúsinu okkar sem gerir vöruúrvalið og afhendingartíma með besta móti.”, segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Lindex rekur nú 5 verslanir á Íslandi, í Smáralind, tvær verslanir í Kringlunni, Glerártorgi á Akureyri og undirfataverslun á Laugavegi 7 auk þess sem verslun í Krossmóa Reykjanesbæ opnar 12. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×