Viðskipti erlent

Ný Snapchat uppfærsla leyfir þér að sjá hvar vinir þínir eru

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá Reykjavík og til Ástralíu er hægt að fylgjast með því sem er að gerast.
Frá Reykjavík og til Ástralíu er hægt að fylgjast með því sem er að gerast. Skjáskot
Nýjasta uppfærsla snjallsímaforritsins Snapchat gerir notendum kleyft að sjá hvar vinir þeirra eru hverju sinni. Uppfærslan heitir Snap Map eða Snap kort og birtist ef súmað er út.

Notendur geta svo valið hvort þeir vilji vera sjáanlegir á kortinu, hvort að allir vinir þeirra hafi aðgang að staðsetningu þeirra eða bara útvaldir.

Þar sem mikil Snapchat virkni er myndast einskonar hitakort og einnig er hægt að súma lengra út í heim og sjá ýmsa viðburði. Þannig er hægt að fylgjast með því sem er að gerast á Justin Bieber tónleikum á Írlandi úr sófanum heima.

Uppfærslan kemur í kjölfar kaupa Snapchat á franska startup fyrirtækinu Zenly, sem hannaði kortið, í lok maí. Kortið notast við Bitmoji-myndir notenda til að sýna staðsetningu þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×