Bíó og sjónvarp

Ron Howard nýr leikstjóri Han Solo-myndarinnar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ron Howard hlaut Óskarsverðlaun fyrir myndina A Beautiful Mind árið 2001.
Ron Howard hlaut Óskarsverðlaun fyrir myndina A Beautiful Mind árið 2001. Vísir/Getty
Ron Howard hefur verið ráðinn leikstjóri fyrirhugaðrar Stjörnustríðs-kvikmyndar um Han Solo en leikstjórarnir sem áður höfðu verið ráðnir til verksins hættu í vikunni.

Lucasfilm, framleiðslufyrirtæki George Lucas, tilkynnti um ráðningu Howard á heimasíðu Stjörnustríðskvikmyndanna í dag.

„Það gleður okkur að tilkynna að Ron Howard mun leikstýra Han Solo myndinni. Við erum með æðislegt handrit, einvalalið leikara og starfsfólks og höfum einsett okkur að búa til frábæra kvikmynd. Tökur munu hefjast aftur 10. júlí,“ segir í tilkynningunni.

Fyrr í vikunni hættu báðir leikstjórar kvikmyndarinnar, Phil Lord og Christopher Miller, vegna listræns ágreinings við Kathleen Kennedy, forseta Lucasfilm og framleiðanda myndarinnar um Han Solo. Howard er því ráðinn í þeirra stað.

Ron Howard hefur unnið sér nokkuð margt til frægðar sem leikstjóri í Hollywood en hann hefur meðal annars leikstýrt kvikmyndunum Willow, Apollo 13, The Da Vinci Code og A Beautiful Mind.

Gert er ráð fyrir að kvikmynd Lucasfilm um Stjörnustríðs-kappann Han Solo verði frumsýnd 25. maí á næsta ári.


Tengdar fréttir

Leikstjórar Han Solo-myndar hættir

Báðir leikstjórar fyrirhugaðrar kvikmyndar um Stjörnustríðshetjuna Han Solo eru hættir vegna listræns ágreinings við framleiðendur hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×