Innlent

Kallaðar út vegna slasaðrar konu við Barnafossa

Atli Ísleifsson skrifar
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Borgarfirði voru kallaðar út.
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Borgarfirði voru kallaðar út. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Borgarfirði voru kallaðar út vegna slasaðrar konu við Barnafossa nú síðdegis.

Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að konan hafi dottið, hlotið áverka á fæti og ekki geta gengið.

„Nokkur fjarlægð er að bílastæði og töluvert klöngur en björgunarmenn báru konuna að stæðinu þar sem hún var sett í sjúkrabíl og er nú á leið á sjúkrahús þar sem gert verður að áverkum hennar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×