Erlent

Alþjóðlegt gervifyrirtæki skráð á Íslandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vefsíðan MyFabricFactory.com er ein gerviverslananna sem sér um þvætti á færslum vegna fjárhættuspila á netinu.
Vefsíðan MyFabricFactory.com er ein gerviverslananna sem sér um þvætti á færslum vegna fjárhættuspila á netinu. Skjáskot
Gervivefverslanir, sem bjóða upp á vörur til heimilisnota, eru notaðar í stórum stíl sem skálkaskjól fyrir greiðslur vegna ólöglegra fjárhættuspila á netinu. Fyrirtækið Agora, sem virðist halda úti fjölda þessara gervivefverslana, er skráð á Íslandi.

Blaðamenn Reuters fjölluðu um málið á vefsíðu sinni í dag. Kannaðar voru sjö vefsíður sem allar eru upprunnar í Evrópulöndum. Vefsíðurnar gera sig út fyrir að vera sölusíður og selja hluti á borð við efnisstranga, hulstur fyrir DVD-myndir og umbúðapappír.

Þessar vefsíður eru gerviverslanir og í gegnum þær er unnið úr greiðslum vegna fjárhættuspila á netinu. Gerviverslanirnar bjóða þannig upp á svokallað „færsluþvætti“ en fjárhættuspil eru ólögleg í mörgum löndum og einhverjum fylkjum Bandaríkjanna.

Færsluþvættið, sem talið er liður í stafrænni þróun peningaþvættis, fer þannig fram að ein netverslun vinnur úr greiðslukortafærslu fyrir hönd annarrar netverslunar og felur uppruna færslunnar.

Gerviverslanirnar gerðu fyrst vart við sig síðla árs 2016 en á meðal verslananna er vefsíðan Myfabricfactory.com. Blaðamaður Reuters keypti efnisstranga á síðunni en pöntunin var aldrei afgreidd – og að endingu endurgreidd.

Skráð á Íslandi

Þegar haft var samband við símanúmer, sem gefið var upp á vefsíðunni MyFabricFactory.com, var blaðamanni Reuters tjáð að hann hefði náð samband við fyrirtæki að nafni Agora Online Services, greiðsluþjónustufyrirtæki, sem samkvæmt Reuters hefur skráðar bækistöðvar á Íslandi. Fyrirtækið, sem einnig er tengt öðrum fyrirtækjum frá Bretlandi og Þýskalandi, heyrir undir enn annað fyrirtæki sem skráð er á Máritíusi, eyríki á Indlandshafi.

Starfsmenn Agora, sem Reuters náði sambandi við, virðast vinna við að svara fyrirspurnum viðskiptavina um peningafærslur. Ef hringt er inn næst samband við starfsmann sem segir viðkomandi peningafærslu tengjast fjárhættuspilum. Fyrirtækið virðist því sérhæfa sig í úrvinnslu á slíkum færslum en í frétt Reuters er sérstaklega minnst á pókergreiðslur.

Annar skráðra eigenda Angora vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en fyrirtækið virðist hluti af stóru neti vefverslana sem skráðar eru hjá fyrirtækjum víðsvegar um Evrópu, þar á meðal í Georgíu og Lettlandi auk Íslands.

Blaðamenn Reuters lögðu inn pantanir á sex vefsíðum til viðbótar en þær reyndust allar vera í eigu Agora. Eftir að blaðamenn náðu sambandi við starfsmenn vefsíðanna hættu síðurnar að taka við pöntunum en hafa þó ekki verið teknar niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×