Innlent

Netsendingum að utan fjölgaði um 60 prósent

Haraldur Guðmundsson skrifar
Rekjanlegar sendingar eru að mestu vörur sem keyptar eru af netverslunum ?á borð við AliExpress og fataverslunum eins og ASOS.
Rekjanlegar sendingar eru að mestu vörur sem keyptar eru af netverslunum ?á borð við AliExpress og fataverslunum eins og ASOS. Fréttablaðið/Ernir
Sendingum frá erlendum netverslunum sem fóru í gegnum Íslandspóst fjölgaði um 60 prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Um 85 prósenta aukning var í fjölda rekjanlegra sendinga sem koma að stærstum hluta frá netverslunum í Kína og Evrópu.

„Það er mjög mikið álag á öllum vígstöðvum hjá okkur. Við höfum verið og erum að leita að nýjum leiðum til að mæta þessu og þróast í takt við breytta tíma. Við höfum brugðist við með því að bæta við starfsfólki á öllum vígstöðvum. Svo vinnur starfsfólk okkar lengur bæði á næturnar og um helgar,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins.

Að sögn Brynjars eru rekjanlegar sendingar að mestu vörur sem keyptar eru af netverslunum á borð við AliExpress og fataverslunum á borð við ASOS og Bohoo. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Pósturinn hefur um sendingar sem berast ríkisfyrirtækinu er langmest keypt af fatnaði. Útlit er fyrir annað metár í afgreiðslu á vörum frá þessum fyrirtækjum og öðrum sambærilegum.

„Við sjáum fyrir okkur áframhaldandi aukningu í náinni framtíð enda ekki útlit fyrir að þetta breytist á næstunni,“ segir Brynjar.

Árið 2013 tvöfölduðust ábyrgðarsendingar frá útlöndum milli ára eða þegar vinsældir AliExpress náðu fyrst flugi. Pósturinn gefur ekki upp magntölur en segir að heildarmagn þessara sendinga hafi rúmlega sjöfaldast síðan 2012. Viðskiptin í dag séu ekki jafn bundin við kínversku netverslunina. Taka ber fram að önnur flutningsfyrirtæki en Pósturinn senda vörur hingað til lands.

Fréttablaðið greindi í desember í fyrra frá því að sendingum hingað til lands frá erlendum verslunum til einstaklinga hefði fjölgað um 55 prósent á milli ára í nóvember 2015 og nóvember 2016. Þremur mánuðum síðar sagði hagfræðideild Landsbankans frá því að hringingar í þjónustuver Póstsins í júní í fyrra hefðu verið jafnmargar og í desember árið á undan eða í annamesta mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×