Körfubolti

Valinn fyrstur en klúðraði málunum skemmtilega á Instagram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Markelle Fultz er mættur til 76ers.
Markelle Fultz er mættur til 76ers.
Markelle Fultz, 19 ára gamall leikmaður Washington-háskólans, var í nótt valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar í körfubolta til Philadelphia 76ers.

Þessi 195 cm hávaxni leikstjórnandi vildi ólmur vera valinn fyrstur en hann talaði um það reglulega í aðdraganda kvöldsins. Hann fékk ósk sína uppfyllta og hefur nú NBA-ferilinn tveimur og hálfum tíma frá æskuheimili sínu.

„Þegar ég heyrði nafnið mitt kallað var það eins og Guð væri að kalla á mig,“ sagði Fultz kampakátur þegar hann steig niður af sviðinu sem nýjasti leikmaður Philadelphia.

Fultz spilaði aðeins eitt ár með Washington-háskólanum og var stigahæsti businn af öllum í efstu deild háskólaboltans á síðustu leiktíð. Hann skoraði 23,2 stig að meðaltali í leik, tók 5,7 fráköst og tók 5,9 fráköst að meðaltali í leik.

Aðeins Kevin Durant ((Texas, 2006-07) og Micahel Beasley (Kansas State, 2007-08) skoruðu meira sem busar á fyrsta ári í háskóla en Fultz undanfarinn áratug.

Fultz var svo glaður og spenntur eftir valið að hann gerði smá skyssu á Instagram. Hann hafði greinilega fengið sendan texta frá umboðsmanni sínum til að setja á Instagram en þar vantaði að setja inn nafn liðsins og borgina sem hann var að fara að spila í.

„Ég er spenntur fyrir því að halda til (nafn borgar) og ganga í raðir (nafn liðs). Tissot hjálpar mér að koma mér af stað með (nafn liðs),“ skrifaði Fultz á Instagram en henti svo færslunni. Að sjálfsögðu náðist skjáskot.

Eins og búist var við endaði Lonzo Ball hjá Los Angeles Lakers og Jayson Tatum frá Duke fór til Boston Celtics. Josh Jackson fór fram Kansas-háskólanum til Phoenix Suns og Sacramento Kings tók Jonathan Isaac frá Kentucky.

Hér má sjá fyrstu umferð nýliðavalsins.

NBA

Tengdar fréttir

Jimmy Butler spangólar nú sem Úlfur

Svakalegar sviptingar voru á nýliðavalsdeginum í NBA og enduðu ein skiptin með því að Jimmy Butler fór til Minnesota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×