Innlent

Manndráp í Mosfellsdal: Telja atburðarásina liggja nokkuð ljósa fyrir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Einn hinna handteknu þegar hann var leiddur fyrir dómi fyrir tveimur vikum síðan.
Einn hinna handteknu þegar hann var leiddur fyrir dómi fyrir tveimur vikum síðan. vísir/eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn á manndrápsmáli í Mosfellsdal telur að atburðarásin í málinu liggi nokkuð ljós fyrir. Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, lögregufulltrúi, í samtali við Vísi.

Sex manns eru grunaðir um aðild að manndrápinu en Arnar Jónsson Aspar lést í kjölfar hrottalegrar líkamsárásar sem hann varð fyrir við heimili sitt, Æsustaði í Mosfellsdal, þann 7. júní síðastliðinn.

Tveir menn eru enn í haldi lögreglu, þeir Jón Trausti Lúthersson og Sveinn Gestur Tryggvason, en gæsluvarðhaldið yfir þeim rennur út í dag. Farið verður fram á áframhaldandi varðhald að sögn Ævars Pálma en mennirnir voru báðir yfirheyrðir í gær. Játning liggur ekki fyrir.

Fjögur til viðbótar voru úrskurðuð í gæsluvarðhald þegar málið kom upp, þrír karlar og ein kona. Þeim var sleppt á fimmtudaginn í síðustu viku en hafa þó enn stöðu sakborninga.

„Já, eins og staðan er núna þá er það þannig en svo verður að taka aftur afstöðu til þess þegar lengra líður á rannsóknina,“ segir Ævar Pálmi.

Hann kveðst aðspurður ekki geta tjáð sig um hvort að til sé myndband af árásinni sem leiddi til dauða Arnars né um nein önnur rannsóknargögn að svo stöddu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×