Körfubolti

Hester spilar með Tindastól í vetur

Elías Orri Njarðarson skrifar
Antonio Hester mætir aftur til leiks í vetur.
Antonio Hester mætir aftur til leiks í vetur. visir/anton
Antonio Hester mun leika aftur með Tindastól í vetur.

Hester sem leikur sem kraftframherji spilaði vel með Tindastól á síðasta tímabili. Hann lék 20 leiki með liðinu og var með 23.4 stig og 10.8 fráköst í leik að meðaltali skv. heimasíðu KKÍ.

Ljóst er að Hester er mikilvægur hlekkur í liði Stólanna en lið Tindastóls vann 16 leiki í Domino's deildinni í vetur og þeir enduðu í 3. sæti.

Í viðtali við Feyki.is segir formaður körfuknattleiksdeild Tindastóls að Hester hafi liðið rosalega vel í Skagafirði og vildi þess vegna koma aftur til þeirra en að mörg lið voru á eftir honum bæði hér heima og erlendis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×