Innlent

Biðu í nítján tíma eftir strigaskóm

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Alls fóru um það bil tvö hundruð unglingar í röð eftir Kanye West strigaskóm fyrir utan búðina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu. Skórnir kláruðust einum og hálfum tíma eftir að búðin opnaði.

Adidas skór rapparans Kanye West koma í afar takmörkuðu upplagi og eru því mjög eftirsóttir hjá ungu kynslóðinni.

Í nótt var komin heillöng röð sem náði frá Hverfisgötu upp að Laugavegi. Þeir sem voru fremst í röðinni mættu klukkan tvö á föstudag og biðu til klukkan níu í morgun, laugardag.

Fréttamaður var staddur í röðinni í nótt og talaði við ungmennin en nokkrir höfðu tjaldað og almennt var góð stemning í mannskapnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×