Erlent

„Vegvonska“ olli umferðarslysi

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Bílslysið hefur vakið talsverða athygli.
Bílslysið hefur vakið talsverða athygli.
Bílslys sem náðist á myndband síðastliðinn miðvikudag hefur vakið talsverða athygli. Atvikið átti sér stað nálægt Los Angeles í Bandaríkjunum um sex leytið að staðartíma en ljóst er að ekki fór vel með þeim sem áttu í hlut. 

Tom Morrison og Chris Taber, sem voru á leið í vinnu, náðu atvikinu á myndband.

Segja þeir að ökumaður bílsins hafi svínað fyrir bifhjólamanninn og við það á sá síðarnefndi að hafa reiðst og sparkað í bílinn. Því næst sveigði bíllinn fyrir hann en missti um leið stjórn á ökutækinu og olli slysinu.

Málið er nú í rannsókn en einn aðili var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka. Mikil mildi er að ekki fór verr að sögn lögregluyfirvalda á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×