Erlent

Átta ára drengur slasaður eftir að keyrt var inn í hóp af múslímum

Átta manns eru slösuð eftir slysið.
Átta manns eru slösuð eftir slysið. Vísir/Getty
Sex manns, þar á meðal þrjú börn, eru slösuð eftir að bíll keyrði inn í hóp af múslímum sem voru að koma úr bænastund. Átta ára drengur er sagður alvarlega slasaður. Hundruðir manna voru á svæðinu að fagna lok Ramadan. BBC greinir frá.

Atvikið átti sér stað, rétt eftir klukkan níu að staðartíma, fyrir utan leikvöll Newcastle. Lögreglan á svæðinu telja að ekki sé um hryðjuverkaárás að ræða. Kona á fertugsaldri er í haldi lögreglu vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×