Handbolti

Viktor Gísli undir smásjá stórliða

Elías Orri Njarðarson skrifar
Viktor Gísli er mjög efnilegur markvörður
Viktor Gísli er mjög efnilegur markvörður mynd/frammyndir/ljósmynd JGK
Viktor Gísli Hallgrímsson, hinn stóri og stæðilegi, markvörður Fram í handbolta hefur verið undir smásjá stórliða um allan heim síðan að tímabilinu á Íslandi lauk.

Viktor sem verður 17 ára á árinu, kom eins og stormsveipur inn í Olís-deildina í vetur og var frábær í mörgum leikjum fyrir Fram. Lið Fram fór alla leið í undanúrslitin í vetur en þeim hafði verið spáð falli úr deildinni.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur Viktor Gísli þegar haldið utan og mætt til æfinga hjá Fusche Berlin í þýsku deildinni. Fusche Berlin er ekki eina liðið sem hefur borið víurnar í Viktor en t.a.m. hafa lið frá Spáni og Frakklandi haft samband við hann.

Spennandi verður að sjá framhaldið hjá þessum unga og efnilega markverði sem hefur í nógu að snúast í sumar, enda valinn í U-17, U-19 og U-21 árs landslið Íslands sem eru öll að keppa á sterkum mótum í sumar.  










Fleiri fréttir

Sjá meira


×