Íslenski boltinn

Var boltinn inni hjá Lennon? | Sjáðu markið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steven Lennon dró FH að landi í Eyjum í dag þegar Íslandsmeistarar unnu mikilvægan en torsóttan 1-0 sigur á Hásteinsvelli í níundu umferð Pepsi-deildarinnar.

Skotinn skoraði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu á 65. mínútu en glæsileg spyrna hans fór í slána og niður. FH-ingar vidu meina að boltinn hefði farið inni þó hann skoppaði aftur út og Oddur Helgi Guðmundsson, aðstoðardómari tvö í leiknum, var sammála gestunum.

Eyjamenn voru ekki hrifnir af þessari ákvörðun Odds en markið stóð og reyndist þetta umdeilda mark sigurmarkið í leiknum.

Hér að ofan má sjá markið sem Steven Lennon skoraði. Erfitt er að sjá hvort boltinn sé inni en markið verður ekki afskráð úr þessu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×