Íslenski boltinn

Jonathan Hendrickx á förum frá FH

Elías Orri Njarðarson skrifar
Jonathan Hendrickx er á förum frá FH
Jonathan Hendrickx er á förum frá FH visir/eyþór
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði í viðtali við fotbolti.net að bakvörðurinn Jonathan Hendrickx sé á förum frá FH.

Aðspurður út í málið sagði Heimir: „Hann er væntanlega á förum í lið erlendis, við reiknum með því að það verði klárað á næstunni.“

Belginn var ekki í leikmannahópi í 0-1 útisigri FH á ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld. Hendrickx hefur verið lykilmaður í liði FH síðan að hann kom til Íslands frá Fortuna Sittard árið 2014.

Hendrickx spilaði 19 leiki á síðasta tímabili þegar að FH-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×