Fótbolti

Balotelli framlengir við Nice

Elías Orri Njarðarson skrifar
Mario að hlaða í skot í leik með Nice á síðasta tímabili
Mario að hlaða í skot í leik með Nice á síðasta tímabili visir/getty
Framherjinn óútreiknanlegi, Mario Balotelli, hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Nice í frönsku deildinni í knattspyrnu.

Balotelli, sem virðist hafa fundið taktinn aftur í Nice, skoraði 15 mörk á síðasta tímabili. Hann hjálpaði liðinu að tryggja sér þriðja sætið í deildinni og að komast í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Ferill Balotelli var á hraðri niðurleið áður en hann fór yfir til Frakklands. Hann lék áður með Liverpool og Manchester City á Englandi en fékk sín fyrstu tækifæri með Inter Milan áður en hann fór til Englands.

Mario hefur spilað 33 landsleiki fyrir Ítalíu og skorað í þeim 13 mörk, en hefur ekki leikið fyrir þjóð sína síðan á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu árið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×