Enski boltinn

Matic sagður á leið til United

Elías Orri Njarðarson skrifar
Nemanja Matic í baráttunni með Chelsea á síðasta tímabili.
Nemanja Matic í baráttunni með Chelsea á síðasta tímabili. visir/getty
Forráðamenn Manchester United eru sagðir reyna að krækja í Nemanja Matic, miðjumann Chelsea, samkvæmt heimildum ESPNFC.

Matic sem er 28 ára kom til Chelsea, í annað sinn á ferlinum, frá Benefica fyrir 21 milljónir punda árið 2014. Matic hefur leikið vel í stöðu sinni sem djúpur miðjumaður síðan að hann sneri aftur til Englands.

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, vill kaupa Matic frá Chelsea, en hann telur að lið sitt þurfi á djúpum miðjumanni að halda. Þar sem að líkur eru á því að Tiemoue Bakayoko, sem spilar einnig sem djúpur miðjumaður, sé á leiðinni til Chelsea frá Monaco er talið að Matic vilji færa sig yfir til United, en kaupverðið er talið vera í kringum 40 milljónir punda.

Mourinho hefur verið rólegur á leikmannamarkaðnum síðan að tímabilinu lauk en hann bætti sænska varnarmanninum Victor Lindelöf við í leikmannahóp United fyrr í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×