Enski boltinn

Sverrir Ingi undir smásjá tveggja liða á Englandi

Elías Orri Njarðarson skrifar
Sverrir Ingi gæti verið á leið til Englands
Sverrir Ingi gæti verið á leið til Englands visir/getty
Huddersfield Town sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og Leeds United sem leikur í ensku Championship deildinni hafa bæði augastað á Sverri Inga Ingasyni, varnarmanni Granada á Spáni og íslenska landsliðsins.

Enska götublaðið The Sun segir frá því að Sverrir sé með klásúlu í samningi sínum við Granada, sem segir að hann megi fara frá félaginu fyrir tvær milljónir punda.

Sverrir hefur leikið með Granada síðan í janúar eftir að hann kom til þeirra frá Lokeren í Belgíu. Granada gekk illa á síðasta tímabili og féllu þeir úr spænsku deildinni eftir erfiða fallbaráttu í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×