Lífið

Írskur veðurfréttamaður fauk úr mynd í vindhviðu

Atli Ísleifsson skrifar
Veðurfréttamaðurinn Deric Hartigan í mótvindi.
Veðurfréttamaðurinn Deric Hartigan í mótvindi.
Írskur veðurfréttamaður fauk úr mynd þegar hann var að segja veðurfréttir í morgunþætti sjónvarpsstöðvarinnar TV3, Ireland AM, á föstudag.

Veðurfréttamaðurinn Deric Hartigan var með stærðarinnar regnhlíf þegar skyndileg vindhviða varð til þess að hann fór úr mynd.

Umsjónarmenn þáttarins, Sinead Desmond og Mark Cagney, hlógu mikið að raunum Hartigan eins og sjá má í spilaranum að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×