Enski boltinn

Mourinho syrgir föður sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mourinho fékk þjálfarabakteríuna frá föður sínum.
Mourinho fékk þjálfarabakteríuna frá föður sínum. vísir/getty
Faðir José Mourinho, José Manuel Mourinho Félix, lést í gær, 79 ára að aldri.

Mourinho minntist föðurs síns með því að birta gamla mynd af þeim feðgum á Instagram.

Mourinho Félix var markvörður á sínum tíma og hellti sér síðar út í þjálfun. Hann lék með Vitória Setúbal og Belenenses og þjálfaði svo bæði félög. Hann lék einn landsleik fyrir Portúgal.

Mourinho Félix stýrði fjölda liða í Portúgal á 20 ára þjálfaraferli. Hann vann næstefstu deild í Portúgal þrisvar sinnum sem þjálfari.

A post shared by Jose Mourinho (@josemourinho) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×