Sport

Brady hafði betur gegn lítilli stelpu í kastkeppni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brady á æfingunni með japönsku krökkunum.
Brady á æfingunni með japönsku krökkunum. vísir/getty
NFL-ofurstjarnan Tom Brady var á dögunum í Japan á vegum Under Armour þar sem hann lék við japanska krakka.

Ungir háskólastrákar fengu tækifæri til þess að grípa bolta frá Brady og svo fór hann í kastkeppni við krakkana.

Þar setti lítil stúlka pressu á Brady með því að klára sitt kast. Brady þurfti að hitta ofan í kassa af enn lengra færi.

Brady hefur snúið við 28-3 stöðu í Super Bowl sér í hag þannig að pressa er ekki til í hans bókum. Enda negldi hann kastið eins og sjá mér hér að neðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×