Erlent

Slapp óskaddaður frá því að verða fyrir rútu

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndband af atvikinu var birt nú í dag.
Myndband af atvikinu var birt nú í dag.
Hinn breski Simon Smith var á gangi um Reading í Bretlandi þegar strætisvagn ók á hann á töluverðum hraða. Smith skaust nokkra metra áfram eftir götunni þar sem hann lenti á gangstéttinni. Hann slapp þó við að verða undir strætisvagninum og stóð sjálfur upp nokkrum sekúndum eftir slysið.

Svo vildi til að hann nánast lenti á þrepi bars og gekk hann þar inn. Samkvæmt BBC hlaut Smith einungis smávægileg meiðsli í slysinu.

Myndband af atvikinu var birt nú í dag, en hægt er að sjá það hér að neðan.

Fyrirtækið sem rekur strætisvagninn segir atvikið til rannsóknar og enginn hefur verið handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×