Enski boltinn

United áhugasamt um Nainggolan

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Radja Nainggolan fagnar einu 11 marka sinna í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Radja Nainggolan fagnar einu 11 marka sinna í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. vísir/getty
Manchester United hefur áhuga á Radja Nainggolan, miðjumanni Roma, og er tilbúið að bjóða allt að 40 milljónir í hann samkvæmt Gazzetta dello Sport.

José Mourinho, knattspyrnustjóri United, virðist vera í leit að miðjumanni og breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann hafi áhuga á að endurnýja kynnin við Nemanja Matic, miðjumann Chelsea.

Nainggolan hefur verið í herbúðum Roma frá því í janúar 2014. Belginn á þrjú ár eftir af samningi sínum við ítalska félagið.

Nainggolan er 29 ára gamall og samkvæmt Gazetta dello Sport er Roma tilbúið að selja hann áður en hann rýrnar í verði.

Nainggolan skoraði 11 mörk í 36 leikjum fyrir Roma í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann hefur alls leikið 160 leiki fyrir Roma og skorað 28 mörk.


Tengdar fréttir

Matic sagður á leið til United

Manchester United er sagt vera að undirbúa boð upp á 40 milljónir punda í Nemanja Matic, miðjumann Chelsea

United freistar Fabinho

Jose Mourinho er að leita að varnarsinnaðum miðjumanni og er með augastað á leikmanni Monaco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×