Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Tímaritið Time útnefndi í gær átta ára ára sýrlenska stúlku eina af áhrifamestu manneskjum internetsins. Stúlkan vakti heimsathygli með Twitter færslum frá hinni stríðshrjáðu heimaborg sinni, Aleppo og verður viðtal við hana sýnt í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar verður líka fjallað um flóðin á Austurlandi, en tjón vegna þeirra er nú talið hlaupa á tugum milljóna króna. Þá fjöllum við um viðvaranir OECD vegna hættu á þenslu í íslenska hagkerfinu og verðum í beinni útsendingu frá útgáfuhófi bókarinnar „Ég er drusla“.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×